Um félagið

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins er almannaheillafélag sem sinnnir fræðslu um krabbamein og krabbameinsvarnir og stuðlar að krabbameinsrannsóknum.

Starfsfólk

Vala Smáradóttir

Formaður og framkvæmdastjóri

vala@krabb.is

540 1900

Guðlaug B. Guðjónsdóttir

Sérfræðingur

gudlaug@krabb.is

565 5555

Svanbjörg Hróðný Einarsdóttir

Fulltrúi

svanbjorg@krabb.is

Stjórn

Jóhanna Sigríður Kristjánsdóttir

Hjúkrunarfræðingur, formaður

Helga Tryggvadóttir

Læknir, varaformaður

Sigrún Perla Böðvarsdóttir

Læknir, meðstjórnandi

Þorgrímur Þráinsson

Rithöfundur, meðstjórnandi

Garðar Örn Þórsson

Hjúkrunarfræðingur, gjaldkeri

Árni Rúnar Þorvaldsson

Kennari, ritari

Hrafnhildur Grímsdóttir

Hjúkrunarfræðingur, varamaður

Hafrún Dóra Júlíusdóttir

Meðstjórnandi

Ívar Kristinsson

Sérfræðingur, varamaður

Agnes Smáradóttir

Læknir, meðstjórnandi

Stiklað á stóru

1949

Krabbameinsfélag Reykjavíkur stofnað

Krabbameinsfélag Reykjavíkur stofnað 8. mars í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Stefán Jónsson arkitekt teiknar merki félagsins.

Gunnar Thorarensen ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri.
Fyrsta aðsetur skrifstofu að Laugavegi 26.

Fyrsta tölublað Fréttabréfs um heilbrigðismál gefið út.

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar stofnað 10. apríl í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði.

1951

Krabbameinsfélag Íslands

Stjórn K.R. falið að undirbúa stofnun sambands krabbameinsfélaga.

Krabbameinsfélag Íslands stofnað.

1952 og 1953

Flutningar og fjáröflun til tækjakaupa

Þóra Björnsdóttir tekur við skrifstofu K.R. sem flytur í Lækjargötu 10b.
KH gengst fyrir fjárölfun til kaupa á lækningatækjum fyrir krabbamein.

Á myndinni má sjá geislatæki sem KR gaf Röntgendeild landspítalans.

1954

Halldóra Thoroddsen ráðin og flutt í Blóðbankann

Skrifstofa K.R flutt í Blóðbankann ásamt skrifstofu K.Í.

Halldóra Thoroddsen ráðin til að sinna ákveðnum störfum fyrir félagið, m.a. skráningu krabbameinssjúklinga jafnframt því sem hún varð framkvæmdastjóri KÍ.

1955

Happdrættið

Fyrsta bílahappdrættinu hleypt af stokkunum.

Á myndinni sem er frá 1962 má sjá vinningsbílinn það árið og konu að selja happdrættismiða út um gluggann.

1957

Krabbameinsleitarstöð

Komið á fót krabbameinsleitarstöð fyrir almenning til að greina krabbmein á byrjunarstigi.

K.Í tók við rekstri leitarstöðvarinnar ári síðar.

1962

Suðurgatan

Krabbameinsfélag Reykjavíkur flytur að Suðurgötu 22 ásamt K.Í.

1963

Fræðslustarf

Krabbameinsfélagi Reykjavíkur falið að annast að miklu leyti fræðslustarf krabbameinssamtakanna.

1964

Nýr framkvæmdastjóri

Jón Oddgeir Jónsson ráðinn framkvæmdastjóri K.R. en hann hafði frá 1960 séð um happdrættið.

1968

Ásbjörg Ívarsdóttir ráðin til starfa við happdrættið.

1974

Fyrstu heiðursfélagarnir og 25 ára afmæli

Fyrstu heiðursfélagar K.R. kjörnir; Alfreð Gíslason, Bjarni Bjarnason og Gísli Sigurbjörnsson.

Sérstakt hátíðarrit Fréttabréfs um heilbrigðismál gefið út í tilefni af 25 ára afmæli K.R.

1975

Nýr framkvæmdastjóri

Þorvarður Örnólfsson lögfræðingur ráðinn framkvæmdastjóri K.R.

1976

Herferðin gegn reykingum!

Hafið stóraukið tóbaksvarnarstarf í skólum.

Takmark - blað helgað tókasvörnum í skólum kemur fyrst út.

1977

Reyklausir bekkir

Reyklausum grunnskólabekkjum send viðurkenningarskjöl í fyrsta sinn.

Reykjavíkurborg styrkir reykingavarnir K.R. í skólum.

1978

Fræðslufulltrúi

Birgir Finnbogason kennari ráðinn í nýtt starf fræðslufulltrúa K.R.

Erindaflokkur um krabbameinsvarnir fluttur í útvarpi.

1979

Fyrsti reyklausi dagurinn

Happdrættismiðar sendir til fólks á öllu landinu bæði vor og haust.

Fyrsti reyklausi dagurinn.

1980

Reykingavarnaráð æskufólks

Reykingavarnaráð æskufólks stofnað.

Ritgerðasamkeppni í grunnskólum um reykingavandamálið í tilefni alþjóðlegs heilbrigðisdags.
Meðfylgjandi er síða úr fréttabréfinu Takmarki des. 1980- sem var dreift til nemenda í 5 til 8. bekk grunnskólanna.

Hugmynd um sérstaka vísindastofnun K.Í. og K.R. rædd og fjárframlag ákveðið.

1982

Vaxandi félag og öflugt starf.

Fjöldi félagsmanna K.R. kominn í 1.227. Öflugt tóbaksvarnarstarf.

Á myndinni má sjá fræðslufulltrúa Krabbameinsfélags Reykjavíkur árið 1982. Talið frá vinstri eru þau Guðbjörg Andrésdóttir, Ingileif Ólafsdóttir og Einar Axelsson. Þorvarður Örnólfsson er lengst til hægri.

1983

Lagafrumfarp um tóbaksvarnir

Lýst stuðningi aðalfundar við lagafrumvarp um tóbaksvarnir.

1984

Undanþága í verkfalli og flutt í Skógarhlíð

Félag bókagerðarmanna og Félag prentiðnaðarins veita undanþágu fyrir prentun gíróseðla fyrir happdrættið meðan á verkfalli og verkbanni stóð.

K.Í. og K.R. flytja í nýtt húsnæði í Skógarhlíð. Myndin og fréttin eru úr tímaritinu Æskunni - 9.-10. Tölublað (01.09.1984)

1986

Sjónræn fræðsla

20 fræðslumyndir hafa verið settar á myndbönd.

1987

Aukið fræðslustarf

Beinn kostnaður af fræðslustarfi tæpar fjórar milljónir króna.

1988

Fræðsluritin

Apótek landsins beðin um að láta fræðslurit K.R. liggja frammi í afgreiðslum sínum eins og verið hafði um árabil á heilsugæslustöðvunum og er enn.

Félagatalan orðin 1.500.

1989

Börnin teikna fyrir tóbaksvarnir

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar endurvakið eftir hvatningu Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar og Inner Wheel klúbbsins.

Gísli Jónsson prófessor kjörinn formaður.

Samkeppni meðal barna um gerð myndefnis til tóbaksvarna í samvinnu við Tóbaksvarnanefnd.

1990

Norrænt átak

Sameiginlegt átak norrænu krabbameinssamtakanna um að fá fólk til að hætta að reykja.

1991

Reykingar grunnskólanema

Happdrættismiðar sendir að vori til karla og um jól til kvenna.

K.R. kannar reykingar og fleira meðal grunnskólanema í 49 skólum.

1992

Konur og reykingar

Ráðstefna um konur og reykingar – endurtekin árið eftir.
Félagsmenn K.R. um 1.600.

1993

Fyrsta reyklausa veitingahúsið

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar veitir Nönnukoti viðurkenningu sem fyrsta reyklausa veitingahúsið á landinu.

1994

Takmark á ný!

Takmark kemur út á ný eftir hlé frá 1986 og nú sem almennt fréttabréf félagsins.

1995

Skýlaust

Skýlaust – nýju blaði dreift til 15-18 ára nemenda í grunnskólum og framhaldsskólum.

Málþing fyrir skólahjúkrunarfræðinga um varnir gegn tóbaksneyslu barna og unglinga.

1997

Nýr framkvæmdastjóri og nýtt námsefni

Nýskipan fræðslustarfsins – reglulegum heimsóknum frá félaginu í skólana hætt – nýtt námsefni gefið út með stuðningi Tóbaksvarnanefndar.

Guðlaug B. Guðjónsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri K.R. af Þorvarði, sem lætur af störfum vegna aldurs.

1998

Reykingar grunnskólabarna kannaðar

Allsherjarathugun héraðslækna og Krabbameinsfélagsins á tóbaksnotkun 10-16 ára grunnskólanema fór fram.

Tæplega 20.000 svör bárust frá einstaklingum. Daglegar reykingar 12-16 ára grunnskólanema sýna aukningu um 0,6% frá 1994 en sé horft á allar reykingar hjá þessum aldurshópi er munurinn rúmlega 1%, fer úr 10,3% 1994 í 11,4% 1998.

1999

Mamma, pabbi hvað er að?

Á 50 ára afmælisfundi K.H. var Jakobína Mathiesen sem þá var 99 ára kjörinn heiðursfélagi en hún sat í fyrstu stjórn félagsins.

Félagið gaf út upplýsingarit um starfsemina í tilefni afmælisins sem var dreift inn á hvert heimili á starfssvæðinu.

Fyrsta námskeiðið -Að lifa með krabbamein- haldið en þau urðu alls fimmtán. Markmiðið var að efla þekkingu og skilning þátttakenda á því sem getur gerst á tíma krabbameinsmeðferðar og auðvelda þeim að takast á við breyttar aðstæður.

Gefinn var út bæklingurinn Mamma, pabbi hvað er að? sem fjallar um hvernig alvarleg veikindi geta haft áhrif á alla fjölskylduna og hvernig koma má börnum sérstaklega til hjálpar við slíkar aðstæður.

2000

Góðir hálsar

Félagið stóð að stofnun hópsins Góðir hálsar sem er hópur karla sem fengið hafa krabbamein í blöðruhálskirtil.

Erindi um tóbaksvarnir flutt á vinnufundi skólahjúkrunarfræðinga. K.R. hélt fund fyrir fræðslufulltrúa norrænu krabbameinsfélaganna.

Námskeið fyrir kennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðinga um breyttar forsendur tóbaksvarna í grunnskólum.

2001

Þjóðarátak krabbameinsfélaganna

Stjórn og starfsmenn K.R. og K.H. tóku virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd landssöfnunar – þjóðarátaki krabbameinsfélaganna.

K.H. opnar skrifstofu í Hafnarfirði og ræður starfsmann.
Reykbindindisnámskeið K.R. kynnt á Læknadögum.

2002

Réttindamál sjúklinga

Evrópa gegn krabbameini, átak Evrópusamtaka krabbameinsfélaga, að þessu sinni helgað réttindamálum sjúklinga. K.R. og heilbrigðisráðuneytið höfðu samvinnu um skipulag hér.

Könnun Krabbameinsfélagsins og héraðslækna á tóbaksnotkun í grunnskólum landsins.
K.H. afhendir St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 1,5 milljónir króna að gjöf til kaupa á tækjum fyrir speglanadeild.

2003

Ómetanlegt starf

Heilbrigðisráðherra heiðraði Þorvarð Örnólfsson fyrir ómetanlegt starf að krabbameinsvörnum.

2004

Hvatt til banns við reykingum á veitingastöðum

Aðalfundur K.R. hvetur heilbrigðisyfirvöld til að breyta tóbaksvarnalögum á þann veg að reykingar verði bannaðar á veitingastöðum.

Lýðheilsustöð tekur við fræðslustarfi um tóbaksvarnir í skólum.

2005

Stofnun vísindasjóðs og brúnkukrem

K.H. gefur öllum fermingarbörnum á starfssvæðinu brúnkukrem.

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur heimsækir alla 8. bekki í grunnskólum Hafnarfjarðar að tilhlutan K.H. og ræðir um vímuefni og forvarnir.

Vinnuhópur fulltrúa svæðafélaga og stuðningshópa um skipulagsmál K.Í. skilaði niðurstöðu og lagði m.a. til að stofna vísindasjóð og að formannafundur fái meira vægi.

2006

Ekki nóg að gert

Stjórn K.R. telur tóbaksvarnastarf í skólum ekki nægjanlegt eftir að Lýðheilsustöð var falið verkefnið.

2007

Fræðsluráð

Fulltrúar K.R. og K.Í. skrifuðu undir nýjan samning um samstarf félaganna varðandi happdrættisrekstur og fræðslumál.

Fræðsluráði félaganna komið á fót til þess að hafa umsjón með og frumkvæði að verkefnum á sviði fræðslumála og útgáfu fræðsluefnis.

2008

Stutt við kaup á nýjum leitartækjum

Leitarstöð afhentur þriggja milljóna króna styrkur K.R. til að kaupa tæki til að bæta leit að leghálskrabbameini. K.H. lagði til eina milljón króna í verkefnið.

Á degi án tóbaks, 31. maí, fékk Þorvarður Örnólfsson fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda fyrir að hafa verið baráttumaður sem hefur unnið sérstaklega að tóbaksvörnum á opinberum vettvangi á Íslandi. Ingibjörg K. Stefánsdóttir fræðslufulltrúi félagsins fékk einnig viðurkenningu fyrir framlag sitt til að hjálpa fólki að hætta að reykja.

2009

60 ára afmæli

Í tilefni af 60 ára afmælum Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar stóðu félögin fyrir málþingi um ristilkrabbamein þar sem leikir og lærðir fluttu erindi.

2010

Hættu að reykja og nota munntóbak

K.H. hrindir af stað átaki varðandi munntóbaksnotkun í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Gert var sérstakt veggspjald með þar sem íþróttamenn lýstu afstöðu sinni gegn munntóbaksnotkun.

Fræðslufulltrúi K.R. heldur 25 fyrirlestra og kynningarfundi fyrir fagfólk, fyrirtæki, félög eða stofnanir um mikilvægi þess að hætta að reykja.

K.H. hóf ásamt Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar svokallar skógargöngur þar sem gengið var um skógræktarsvæði með leiðsögn.

K.R. og K.H. taka þátt fjáröflunarátakinu Karlmenn og krabbamein „Mottumars“ þar sem karlar eru hvattir til að safna yfirvaraskeggi og safna áheitum til styrktar baráttunni gegn krabbameini.

2011

Þetta er svo lúmskt

K.H. fær tónlistar- og íþróttamanninn Jón Ragnar Jónsson til að heimsækja grunnskólanema í Hafnarfirði.

K.H. ákveður að styðja við sepaskráningu ristilkrabbameins sem meltingardeild St. Jósefsspítala hefur annast frá árinu 1982 undir stjórn Ásgeirs Theódórs.

Fræðslumyndin Þetta er svo lúmskt frumsýnd í mars. Í henni eru birt viðtöl við einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein í ristli og endaþarmi og fagfólk um greiningu og meðferð.

K.R. kom að því að endurvekja heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins.

2012

Samkeppni um tóbaksvarnarveggspjald

Þjóðminjasafnið óskar eftir aðstoð K.R. vegna sýningar um notkun tóbaks og stendur fyrir samkeppni meðal grunnskólanema um hönnun á tóbaksvarnaveggspjaldi.

Aðalfundur skorar á heilbrigðisyfirvöld að hrinda sem fyrst í framkvæmd skimun fyrir ristilkrabbameini.

2013

Stutt við kaup á aðgerðarþjarki og línuhraðli

2013

K.R. leggur fram tvær milljónir króna til stuðnings kaupum á aðgerðarþjarki fyrir skurðlækningar krabbameina og línuhraðli sem notaður er við geislameðferð krabbameina.

Stuðningshópur kvenna með krabbamein í eggjastokkum, Ristilfélagið og Góðir hálsar stóðu einnig að gjöfunum.

2014

Aðgát í nærveru sólar

Fræðslumynd um sortuæxli og önnur húðkrabbamein, Aðgát í nærveru sólar, frumsýnd í sjónvarpinu, unnin í samstarfi K.R. og nokkurra aðila.

Faraldur ristilkrabbameins: Verður eitthvað aðhafst? Málþing haldið á Læknadögum í samvinnu K.R., Félags sérfræðinga í meltingarsjúkdómum og Félags ristil- og endaþarmsskurðlækna.

Samstarfssamningur K.R. og K.Í. undirritaður um fræðslustarfsemi og happdrættismál.

Vísindasjóður

2015

K.R. leggur tíu milljónir króna í Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins og K.H. lagði einnig fram sinn skerf.

K.H. veitir krabbameinssjúkum börnum á Barnaspítala Hringsins 500 þús. kr. styrk.

2016

Ályktun - Setjið lög um sölu og notkun rafsígaretta!

Aðalfundur skorar á yfirvöld að setja sem allra fyrst í lög og reglugerðir ákvæði um sölu og notkun rafsígaretta.

Ný vefsíða Krabbameinsfélagsins tekin í gagnið en K.R. lagði til 1,9 milljónir króna í endurgerð hennar.

2017

Áskorun - ljúkið gerð krabbameinsáætlunar!

Aðalfundur K.R. skorar á heilbrigðisyfirvöld að ljúka sem fyrst gerð krabbameinsáætlunar fyrir Ísland.

2018

Sameining í höfuðborgarfélag

Samþykkt tillaga á aðalfundi Krabbameinsfélags Reykjavíkur um sameiningu félagsins og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og að nafn hins sameinaða félags verði Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins.

Fræðslunámskeið um rafsígarettur.

2019

Nýtt líf án tóbaks

Fræðsla um rafsígarettur í 10. bekkjum á höfuðborgarsvæðinu.

Nýtt líf án tóbaks, stuttar fræðslumyndir með skilaboðum til ófrískra kvenna sem nota tóbak eða nikótín á meðgöngu.

2020

Karlamein - fræðslumynd um blöðruhálskrabbamein

Fræðslumyndin Karlamein - um blöðruhálskrabbamein frumsýnd og bæklingar endurútgefnir og aðrir þýddir og staðfærðir.

Unnið að fræðsluefni um krabbamein og áfengi.

Jón Jónsson tónlistar- og fjölmiðlamaður heimsótti nemendur í 8. bekk í Hafnarfirði og fræddi þau um skaðsemi munntóbaks og rafretta.

Áform um frekari fræðslu varð að engu vegna Covid en þess í stað var m.a. tekinn upp fræðslufyrirlestur um rafsígarettur með Láru Sigurðardóttur lækni sem var aðgengilegur fyrir alla skóla, foreldrafélög, heilsugæslur, félagsmiðstöðvar, vinnuskóla og fleiri. Mörgu fleiru varð að fresta vegna Covid t.d. stóru málþingi um nýjar nikótínvörur.

KH skoraði á heilbrigðisyfirvöld að hrinda sem fyrst í framkvæmd skimun fyrir krabbameini í ristli og endaþarmi. Einnig var samþykkt, og send út, áskorun til yfirvalda um að móta framtíðarstefnu í tóbaksvörnum.

Jafnframt var markaðseftirliti Neytendastofu með sölustöðum rafretta var hrósað.

2021

Fjölbreytt samstarfsverkefni og útgráfa fræðsluefnis

Félagið fékk styrk úr Lýðheilsusjóði til að vinna fræðsluefni um krabbamein og áfengi.
Unnið að árvekniskilaboðum um holla lífshætti.

Ýmis samstarfsverkefni:

Veffræðsluefni um næringu og krabbamein sem er samstarfsverkefni KH, KÍ og Landspítala.

„Mamma, pabbi hvað er að?“ fræðsluefni fyrir fjölskyldur þar sem foreldri fær krabbamein. Þýtt og staðfært fræðsluefni frá Danska krabbameinsfélaginu en með nýjum myndum.

Fræðsluefni sent öllum heimilslæknum um áhrif reykinga á hættu á að fá kórónuveiruna.

Ýmis verkefni í bið vegna Covid.

Yfirvöld hvött til að móta sem allra fyrst heilstæða áfengisforvarnarstefnu en æ fleiri rannsóknir sýna tengsl milli áfengisneyslu og krabbameins.
KH skorar á heilbrigðisyfirvöld að móta framtíðarstefnu og aðgerðaráætlun og taka upp „hlutlausar“ tóbaksumbúðir og banna bragðefni í tóbaki og nikótínvörum.

2022

Þurr janúar og hollir lífshættir

Árvekniskilaboðin um ávinning hollra lífshátta og mikilvægi þátttöku í skimunum.

Verkefninu Þurr janúar hleypt af stokkunum.

Fræðsluefnið „Virkt eftirlit“ og „Vöktuð bið“ fræðsluefni fyrir karla sem greinst hafa með blöðruhálskrabbamein dreift á vef. Samhliða var dreift á samfélagsmiðlum skilaboðum úr fræðslumyndinni „Karlamein".

Málþingið Nikótin og heilsa haldið 11. október.

Norrænn tveggja daga samráðsfundur norræna félagasamtaka í tóbaksvörnum haldinn hér á landi í september.

KH og Heilsulausnir undirrita samkomulag um samvinnu á sviði tóbaks- og nikótínvarna

2023

Skrepp í skimun og fræðslumyndin Brjóstamein

Átakið "Skrepp í skimun" - samstarfsvekefni KH, Brjóstamiðstöðvar og FKA. Markmiðið er að draga fram hversu einfalt og mikilvægt það er að mæta í skimun.

Brjóstamein - fræðslumynd um brjóstakrabbamein frumsýnd á RÚV.
Samstarfsverkefni með dag- og göngudeild blóð- og krabbameinslækninga 11B er fræðsluefni þýtt yfir á pólsku.

Tilgangur Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins hefur frá upphafi verið hinn sami og samhljóða öðrum krabbameinsfélögum í landinu: Að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Í lögum félagsins er skilgreint hvernig ná skuli þessum tilgangi;

• Fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir.

• Stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins.

• Veita krabbameinssjúklingum stuðning.

• Stuðla að krabbameinsrannsóknum hér á landi.

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins sinnir fyrst og fremst fræðslu og forvörnum. Félagið sér um skrif og útgáfu fræðsluefnis, hefur gert fjölda fræðslumynda og auglýsinga, skipuleggur herferðir og fylgist ötulllega með því sem er að gerast hérlendis og erlendis. Í því felst meðal annars að skrifa umsagnir um frumvörp, skrifa og senda út ályktanir og ákoranir, skrifa greinar og margt fleira.