Upprunalegt hlutverk nikótíns er að trufla taugakerfi skordýra sem herja á plöntur af tóbaksætt og valda lömun eða dauða þeirra. Það er því í grunninn taugaeitur og hefur verið notað sem slíkt. Það er eitt mest ávanabindandi efni sem vitað er um og hefur skaðleg áhrif á heilaþroska ungs fólks, einbeitingu, kvíða og líðan.
Nú er nikótín markaðsett í litríkum umbúðum, með bragðefnum og í formi sem höfðar sérstaklega til yngri aldurshópa. Þannig hefur tekist að gera notkun nikótíns sjálfsagt á ný eftir mikla og langvarandi baráttu gegn reykingum.