Maí mánuður er alþjóðlegur vitundarvakningarmánuður um sortuæxli og önnur húðkrabbamein.
Sortuæxli eru alvarlegasta tegund húðkrabbameina. Auðvelt er þó að lækna meinin ef þau greinast snemma. Mikilvægt er að fólk sem hefur áhættuþætti, eða fæðingarbletti fylgist reglulega með húð sinni og leiti álits lækna ef áhyggjur vakna eða ef blettur hefur tekið breytingum.
Þegar fylgst er með blettum er gott að hafa þessa fimm hluti sem sjá má á myndinni í huga: