Húðkrabbamein

Hvað ber að varast

Útfjólublá geislun frá sól og ljósabekkjum eykur líkur á húðkrabbameini.

Endurteknir sólbrunar og uppsöfnuð geislun yfir ævina eru stærstu áhættuþættirnir.

Ljósabekkir eru sérstaklega skaðlegir og auka áhættuna verulega.

Í mörgum löndum er sólin sterkari en á Íslandi, sérstaklega nær miðbaug — þar þarf að vera enn varkárari.

Á Íslandi er sólin sterkust í júní og júlí.. Mesta geislunin er kl. 10–16.

Sólarvörn og varúð þarf frá miðjum apríl til seinni hluta september.

Sólarvarnir

Taktu regluleg hlé frá sól.

Leitaðu í skugga þegar sólin er hæst á lofti.

Endurkast

Þú getur fengið mikla geislun án þess að vera í beinu sólskini.

Sólargeislar endurkastast frá vatni, sandi, snjó og steypu.

Klæðnaður

Í sterkri sól er best að hylja handleggi, fótleggi, axlir og bringu.

Barðastórir hattar verja andlit, eyru og hnakka.

Derhúfur og buff veita minni vörn en sólhattur.

Góð sólgleraugu draga úr álagi á augun og verja gegn UV-geislum.

Sólaráburður

Engin sólarvörn veitir fullkomna vörn — hún er viðbót, ekki staðgengill fyrir skugga og fatnað.

Nota ætti sólarvörn sem ver gegn UVA og UVB með SPF 30 eða hærra.

Berðu á 30 mínútum áður en þú ferð út.

Endurtaktu á 2–3 klst. fresti, oftar ef þú ferð í vatn eða þurrkar þig.

Svæði sem oft gleymast: eyru, hnakki, bringa, axlir, hársvörður, handarbök.

Notaðu varasalva með sólarvörn.