Um félagið

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins er almannaheillafélag sem sinnnir fræðslu um krabbamein og krabbameinsvarnir og stuðlar að krabbameinsrannsóknum.

Starfsfólk

Vala Smáradóttir

Formaður og framkvæmdastjóri

vala@krabb.is

540 1900

Guðlaug B. Guðjónsdóttir

Sérfræðingur

gudlaug@krabb.is

565 5555

Svanbjörg Hróðný Einarsdóttir

Fulltrúi

svanbjorg@krabb.is

Stjórn

Agnes Smáradóttir

Læknir, meðstjórnandi

Ívar Kristinsson

Sérfræðingur, varamaður

Hafrún Dóra Júlíusdóttir

Meðstjórnandi

Hrafnhildur Grímsdóttir

Hjúkrunarfræðingur, varamaður

Jóhanna Sigríður Kristjánsdóttir

Hjúkrunarfræðingur, formaður

Helga Tryggvadóttir

Læknir, varaformaður

Árni Rúnar Þorvaldsson

Kennari, ritari

Garðar Örn Þórsson

Hjúkrunarfræðingur, gjaldkeri

Þorgrímur Þráinsson

Rithöfundur, meðstjórnandi

Sigrún Perla Böðvarsdóttir

Læknir, meðstjórnandi

1949

Krabbameinsfélag Reykjavíkur stofnað 8. mars í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Gunnar Thorarensen ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri.

Fyrsta aðsetur skrifstofu að Laugavegi 26.

Stefán Jónsson arkitekt teiknar merki félagsins.

Fyrsta tölublað Fréttabréfs um heilbrigðismál gefið út.

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar stofnað 10. apríl í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði.

1951

Stjórn K.R. falið að undirbúa stofnun sambands krabbameinsfélaga.

Krabbameinsfélag Íslands stofnað.

1952

Þóra Björnsdóttir tekur við skrifstofu K.R. sem flytur í Lækjargötu 10b.

Krabbameinsfélag Reykjavíkur, stofnað 8. mars 1949, og Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar, stofnað 10. apríl 1949, sameinuðust í Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins þann 19. mars 2018. Þessi félög eru elstu krabbameinsfélög Íslands. 

Stiklað á stóru í sögu félagsins:

Annáll 1949-2019

 1949

Krabbameinsfélag Reykjavíkur stofnað 8. mars í hátíðarsal Háskóla Íslands.

Gunnar Thorarensen ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri.

Fyrsta aðsetur skrifstofu að Laugavegi 26.

Stefán Jónsson arkitekt teiknar merki félagsins.

Fyrsta tölublað Fréttabréfs um heilbrigðismál gefið út.

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar stofnað 10. apríl í Sjálfstæðishúsinu í Hafnarfirði.

1951

Stjórn K.R. falið að undirbúa stofnun sambands krabbameinsfélaga.

Krabbameinsfélag Íslands stofnað.

1952

Þóra Björnsdóttir tekur við skrifstofu K.R. sem flytur í Lækjargötu 10b.

1953

K.H. gengst fyrir fjáröflun til kaupa á lækningatækjum fyrir krabbamein.

1954

Skrifstofa K.R. flutt í Blóðbankann ásamt skrifstofu K.Í.

Halldóra Thoroddsen ráðin til að sinna ákveðnum störfum fyrir félagið, m.a. skráningu krabbameinssjúklinga jafnframt því sem hún gerðist framkvæmdastjóri K.Í.

1955

Fyrsta bílahappdrættinu hleypt af stokkunum.

1957

Komið á fót krabbameinsleitarstöð fyrir almenning til að greina krabbamein á byrjunarstigi – K.Í. tók við rekstri hennar árið eftir.

1962

K.R. flytur að Suðurgötu 22 ásamt K.Í.

1963

Krabbameinsfélagi Reykjavíkur falið að annast að miklu leyti fræðslustarf krabbameinssamtakanna.

1964

Jón Oddgeir Jónsson ráðinn framkvæmdastjóri K.R. en hann hafði frá 1960 séð um happdrættið.

1968

Ásbjörg Ívarsdóttir ráðin til starfa við happdrættið.

1974

Fyrstu heiðursfélagar K.R. kjörnir: Alfreð Gíslason, Bjarni Bjarnason og Gísli Sigurbjörnsson.

Sérstakt hátíðarrit Fréttabréfs um heilbrigðismál gefið út í tilefni af 25 ára afmæli K.R.

1975

Þorvarður Örnólfsson lögfræðingur ráðinn framkvæmdastjóri K.R.

1976

Hafið stóraukið tóbaksvarnastarf í skólum (Herferðin gegn reykingum). Takmark – blað helgað tóbaksvörnum í skólum kemur fyrst út.

1977

Reyklausum grunnskólabekkjum send viðurkenningarskjöl í fyrsta sinn.

Reykjavíkurborg styrkir reykingavarnir K.R. í skólum.

1978

Erindaflokkur um krabbameinsvarnir fluttur í útvarpi.

Birgir Finnbogason kennari ráðinn í nýtt starf fræðslufulltrúa K.R.

1979

Happdrættismiðar sendir til fólks á öllu landinu bæði vor og haust.

Fyrsti reyklausi dagurinn.

1980

Hugmynd um sérstaka vísindastofnun K.Í. og K.R. rædd og fjárframlag ákveðið. Reykingavarnaráð æskufólks stofnað. Ritgerðasamkeppni í grunnskólum um reykingavandamálið í tilefni alþjóðlegs heilbrigðisdags.

1982

Fjöldi félagsmanna K.R. kominn í 1.227.

1983

Lýst stuðningi aðalfundar við lagafrumvarp um tóbaksvarnir.

1984

Félag bókagerðarmanna og Félag prentiðnaðarins veita undanþágu fyrir prentun gíróseðla fyrir happdrættið meðan á verkfalli og verkbanni stóð.

K.Í. og K.R. flytja í nýtt húsnæði í Skógarhlíð.

1986

20 fræðslumyndir hafa verið settar á myndbönd.

1987

Beinn kostnaður af fræðslustarfi tæpar fjórar milljónir króna.

1988

Apótek landsins beðin að láta fræðslurit K.R. liggja frammi í afgreiðslum sínum eins og verið hafði um árabil á heilsugæslustöðvunum og er enn.

Félagatalan orðin 1.500.

1989

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar endurvakið eftir hvatningu Rótarýklúbbs Hafnarfjarðar og Inner Wheel klúbbsins. Gísli Jónsson prófessor kjörinn formaður.

Samkeppni meðal barna um gerð myndefnis til tóbaksvarna í samvinnu við Tóbaksvarnanefnd.

1990

Sameiginlegt átak norrænu krabbameinssamtakanna um að fá fólk til að hætta að reykja.

1991

Happdrættismiðar sendir að vori til karla og um jól til kvenna. K.R. kannar reykingar og fleira meðal grunnskólanema í 49 skólum.

1992

Ráðstefna um konur og reykingar – endurtekin árið eftir.

Félagsmenn K.R. um 1.600.

1993

Krabbameinsfélag Hafnarfjarðar veitir Nönnukoti viðurkenningu sem fyrsta reyklausa veitingahúsið á landinu.

1994

Takmark kemur út á ný eftir hlé frá 1986 og nú sem almennt fréttabréf félagsins.

1995

Skýlaust – nýju blaði dreift til 15-18 ára nemenda í grunnskólum og framhaldsskólum.

Málþing fyrir skólahjúkrunarfræðinga um varnir gegn tóbaksneyslu barna og unglinga.

1997

Guðlaug B. Guðjónsdóttir tekur við sem framkvæmdastjóri K.R. af Þorvarði, sem lætur af störfum vegna aldurs.

Nýskipan fræðslustarfsins – reglulegum heimsóknum frá félaginu í skólana hætt – nýtt námsefni gefið út með stuðningi Tóbaksvarnanefndar.

1998

Allsherjarathugun héraðslækna og Krabbameinsfélagsins á tóbaksnotkun 10-16 ára grunnskólanema fór fram. Tæplega 20.000 svör bárust frá einstaklingum. Daglegar reykingar 12-16 ára grunnskólanema sýna aukningu um 0,6% frá 1994 en sé horft á allar reykingar hjá þessum aldurshópi er munurinn rúmlega 1%, fer úr 10,3% 1994 í 11,4% 1998.

1999

Á 50 ára afmælisfundi K.H. var Jakobína Mathiesen sem þá var 99 ára kjörinn heiðursfélagi en hún sat í fyrstu stjórn félagsins.

Félagið gaf út upplýsingarit um starfsemina í tilefni afmælisins sem var dreift inn á hvert heimili á starfssvæðinu.

Fyrsta námskeiðið Að lifa með krabbamein haldið en þau urðu alls fimmtán. Markmiðið var að efla þekkingu og skilning þátttakenda á því sem getur gerst á tíma krabbameinsmeðferðar og auðvelda þeim að takast á við breyttar aðstæður.

Gefinn var út bæklingurinn Mamma, pabbi hvað er að? sem fjallar um hvernig alvarleg veikindi geta haft áhrif á alla fjölskylduna og hvernig koma má börnum sérstaklega til hjálpar við slíkar aðstæður.

2000

Erindi um tóbaksvarnir flutt á vinnufundi skólahjúkrunarfræðinga. K.R. hélt fund fyrir fræðslufulltrúa norrænu krabbameinsfélaganna.

Námskeið fyrir kennara, námsráðgjafa og skólahjúkrunarfræðinga um breyttar forsendur tóbaksvarna í grunnskólum.

Félagið stóð að stofnun hópsins Góðir hálsar sem er hópur karla sem fengið hafa krabbamein í blöðruhálskirtil.

2001

K.H. opnar skrifstofu í Hafnarfirði og ræður starfsmann.

Reykbindindisnámskeið K.R. kynnt á Læknadögum.

Stjórn og starfsmenn K.R. og K.H. tóku virkan þátt í undirbúningi og framkvæmd landssöfnunar – þjóðarátaki krabbameinsfélaganna.

2002

K.H. afhendir St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 1,5 milljónir króna að gjöf til kaupa á tækjum fyrir speglanadeild.

Evrópa gegn krabbameini, átak Evrópusamtaka krabbameinsfélaga, að þessu sinni helgað réttindamálum sjúklinga. K.R. og heilbrigðisráðuneytið höfðu samvinnu um skipulag hér.

Könnun Krabbameinsfélagsins og héraðslækna á tóbaksnotkun í grunnskólum landsins.

2003

Heilbrigðisráðherra heiðraði Þorvarð Örnólfsson fyrir ómetanlegt starf að krabbameinsvörnum.

2004

Aðalfundur K.R. hvetur heilbrigðisyfirvöld til að breyta tóbaksvarnalögum á þann veg að reykingar verði bannaðar á veitingastöðum.

Lýðheilsustöð tekur við fræðslustarfi um tóbaksvarnir í skólum.

2005

Þorgrímur Þráinsson rithöfundur heimsækir alla 8. bekki í grunnskólum Hafnarfjarðar að tilhlutan K.H. og ræðir um vímuefni og forvarnir.

K.H. gefur öllum fermingarbörnum á starfssvæðinu brúnkukrem.

Vinnuhópur fulltrúa svæðafélaga og stuðningshópa um skipulagsmál K.Í. skilaði niðurstöðu og lagði m.a. til að stofna vísindasjóð og að formannafundur fái meira vægi.

2006

Stjórn K.R. telur tóbaksvarnastarf í skólum ekki nægjanlegt eftir að Lýðheilsustöð var falið verkefnið.

2007

Fulltrúar K.R. og K.Í. skrifuðu undir nýjan samning um samstarf félaganna varðandi happdrættisrekstur og fræðslumál.

Fræðsluráði félaganna komið á fót til þess að hafa umsjón með og frumkvæði að verkefnum á sviði fræðslumála og útgáfu fræðsluefnis.

2008

Leitarstöð afhentur þriggja milljóna króna styrkur K.R. til að kaupa tæki til að bæta leit að leghálskrabbameini. K.H. lagði til eina milljón króna í verkefnið.

Á degi án tóbaks, 31. maí, fékk Þorvarður Örnólfsson fyrrverandi framkvæmdastjóri félagsins viðurkenningu heilbrigðisyfirvalda fyrir að hafa verið baráttumaður sem hefur unnið sérstaklega að tóbaksvörnum á opinberum vettvangi á Íslandi. Ingibjörg K. Stefánsdóttir fræðslufulltrúi félagsins fékk einnig viðurkenningu fyrir framlag sitt til að hjálpa fólki að hætta að reykja.

2009

Í tilefni af 60 ára afmælum Krabbameinsfélags Reykjavíkur og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar stóðu félögin fyrir málþingi um ristilkrabbamein þar sem leikir og lærðir fluttu erindi.

2010

K.H. hrindir af stað átaki varðandi munntóbaksnotkun í samvinnu við Hafnarfjarðarbæ. Gert var sérstakt veggspjald með þar sem íþróttamenn lýstu afstöðu sinni gegn munntóbaksnotkun.

K.H. hóf ásamt Skógræktarfélagi Hafnarfjarðar svokallar skógargöngur þar sem gengið var um skógræktarsvæði með leiðsögn.

Fræðslufulltrúi K.R. heldur 25 fyrirlestra og kynningarfundi fyrir fagfólk, fyrirtæki, félög eða stofnanir um mikilvægi þess að hætta að reykja.

K.R. og K.H. taka þátt fjáröflunarátakinu Karlmenn og krabbamein „Mottumars“ þar sem karlar eru hvattir til að safna yfirvaraskeggi og safna áheitum til styrktar baráttunni gegn krabbameini.

2011

K.H. fær tónlistar- og íþróttamanninn Jón Ragnar Jónsson til að heimsækja grunnskólanema í Hafnarfirði.

K.H. ákveður að styðja við sepaskráningu ristilkrabbameins sem meltingardeild St. Jósefsspítala hefur annast frá árinu 1982 undir stjórn Ásgeirs Theódórs.

Fræðslumyndin Þetta er svo lúmskt frumsýnd í mars. Í henni eru birt viðtöl við einstaklinga sem hafa greinst með krabbamein í ristli og endaþarmi og fagfólk um greiningu og meðferð.

K.R. kom að því að endurvekja heilsuhlaup Krabbameinsfélagsins.

2012

Þjóðminjasafnið óskar eftir aðstoð K.R. vegna sýningar um notkun tóbaks og stendur fyrir samkeppni meðal grunnskólanema um hönnun á tóbaksvarnaveggspjaldi.

Aðalfundur skorar á heilbrigðisyfirvöld að hrinda sem fyrst í framkvæmd skimun fyrir ristilkrabbameini.

2013

K.R. leggur fram tvær milljónir króna til stuðnings kaupum á aðgerðarþjarki fyrir skurðlækningar krabbameina og línuhraðli sem notaður er við geislameðferð krabbameina. Stuðningshópur kvenna með krabbamein í eggjastokkum, Ristilfélagið og Góðir hálsar stóðu einnig að gjöfunum.

2014

Fræðslumynd um sortuæxli og önnur húðkrabbamein, Aðgát í nærveru sólar, frumsýnd í sjónvarpinu, unnin í samstarfi K.R. og nokkurra aðila.

Faraldur ristilkrabbameins: Verður eitthvað aðhafst? Málþing haldið á Læknadögum í samvinnu K.R., Félags sérfræðinga í meltingarsjúkdómum og Félags ristil- og endaþarmsskurðlækna.

Samstarfssamningur K.R. og K.Í. undirritaður um fræðslustarfsemi og happdrættismál.

2015

K.R. leggur tíu milljónir króna í Vísindasjóð Krabbameinsfélagsins og K.H. lagði einnig fram sinn skerf.

K.H. veitir krabbameinssjúkum börnum á Barnaspítala Hringsins 500 þús. kr. styrk.

2016

Ný vefsíða Krabbameinsfélagsins tekin í gagnið en K.R. lagði til 1,9 milljónir króna í endurgerð hennar.

Aðalfundur skorar á yfirvöld að setja sem allra fyrst í lög og reglugerðir ákvæði um sölu og notkun rafsígaretta.

2017

Aðalfundur K.R. skorar á heilbrigðisyfirvöld að ljúka sem fyrst gerð krabbameinsáætlunar fyrir Ísland.

2018

Samþykkt tillaga á aðalfundi Krabbameinsfélags Reykjavíkur um sameiningu félagsins og Krabbameinsfélags Hafnarfjarðar og að nafn hins sameinaða félags verði Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins.

Fræðslunámskeið um rafsígarettur.

2019

Fræðsla um rafsígarettur í 10. bekkjum á höfuðborgarsvæðinu.

Nýtt líf án tóbaks, stuttar fræðslumyndir með skilaboðum til ófrískra kvenna sem nota tóbak eða nikótín á meðgöngu.

Tilgangur Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins hefur frá upphafi verið hinn sami og samhljóða öðrum krabbameinsfélögum í landinu: Að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Í lögunum er skilgreint hvernig ná skuli þessum tilgangi;

• Fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir.

• Stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins.

• Veita krabbameinssjúklingum stuðning.

• Stuðla að krabbameinsrannsóknum hér á landi.

Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins sinnir fyrst og fremst fræðslu og forvörnum. Félagið sér um skrif og útgáfu fræðsluefnis, hefur gert fjölda fræðslumynda og auglýsinga, skipuleggur herferðir og fylgist ötulllega með því sem er að gerast hérlendis og erlendis. Í því felst meðal annars að skrifa umsagnir um frumvörp, skrifa og senda út ályktanir og ákoranir, skrifa greinar og margt fleira.