Mottumars er árlegt árvekni- og fjáröflunarátak þar sem vakin er athygli á málefnum tengdum krabbameinum hjá körlum og um leið safnað fyrir mikilvægri starfsemi Krabbameinsfélagsins. Á hverju ári í Mottumars framleiðir og selur félagið Mottumarssokka með nýrri hönnun.
Mottumarssokkarnir sem í ár eru einstaklega litríkir og fallegir, eru hannaðir af Stefáni Svan Aðalheiðarsyni í Stefánsbúð í samstarfi við grafísku hönnuðina Lindu Loeskow og Anton Kaldal Ágústsson. Hönnunin byggir á orðunum „Takk fyrir“ sem fléttast saman í lifandi og áberandi mynstri og leturgerð. Í þeim felst þakklæti til samfélagsins alls. Ýmsar aðrar, fallegar og karlmannlegar vörur eru í boði í tengslum við átakið.
💈Nældu þér í par hér: https://vefverslun.krabb.is/…/mottumarssokkarnir-2026