Leghálsskimun – lítið mál

2026

Markmið með leghálsskimunum er að greina frumubreytingar sem geta leitt til leghálskrabbameins og meðhöndla ef þörf krefur. Þannig er hægt að koma í veg fyrir mein, lækka nýgengi þess og dánartíðni af völdum þess. Hér á landi er konum á aldrinum 23-64 ára boðið í leghálsskimun. Konur á aldrinum 23-29 ára fá boð á þriggja ára fresti og 30-64 ára konur á fimm ára.
Tengill yfir á vefsíðu herferðarinnar.