Tilgangur Krabbameinsfélags höfuðborgarsvæðisins hefur frá upphafi verið hinn sami og samhljóða öðrum krabbameinsfélögum í landinu: Að styðja í hvívetna baráttuna gegn krabbameini. Í lögum félagsins er skilgreint hvernig ná skuli þessum tilgangi;
• Fræða almenning um krabbamein og krabbameinsvarnir.
• Stuðla að aukinni menntun heilbrigðisstétta í greiningu, fyrirbyggjandi aðgerðum og meðferð krabbameins.
• Veita krabbameinssjúklingum stuðning.
• Stuðla að krabbameinsrannsóknum hér á landi.
Krabbameinsfélag höfuðborgarsvæðisins sinnir fyrst og fremst fræðslu og forvörnum. Félagið sér um skrif og útgáfu fræðsluefnis, hefur gert fjölda fræðslumynda og auglýsinga, skipuleggur herferðir og fylgist ötulllega með því sem er að gerast hérlendis og erlendis. Í því felst meðal annars að skrifa umsagnir um frumvörp, skrifa og senda út ályktanir og ákoranir, skrifa greinar og margt fleira.